top of page

Endurmenntunarferðir kennara

Fróðlegar og skemmtilegar

Námsferð til Tenerife.
Við bjóðum upp á tilbúnar og vel skipulagaðar námsferðir fyrir kennara.  í ferðapakkanum  heimsækjum við áhugaverða skóla, sem hafa þurft að aðlaga sig að þessu fjölmenningarlega og sérstaka samfélagi sem Tenerife er .  Gistum á fjögurra stjörnu hóteli með hálfu fæði. Tökum saman skemmtilegan dag í hópefli (valkvætt, nokkrir valmöguleikar) og síðast en ekki síst bara að njóta í sól og sumri. 

Tenerife Ferðir hafa um árabil unnið sér inn mikla reynslu og þekkingu á eyjunni, hefur úrval af frábærum fararstjórum sem allir hafa verið búsettir á eyjunni um árabil.  Skrifstofa Tenerife Ferða er í göngufæri frá hótelinu sem við bjóðum upp á í þessum ferðum.

Grunnpakki - 7 dagaferð

(miðast við hópa (+10 manns))

Dagskrá:

  1. Flug og innritun á Hótel

  2. Skólaheimsókn - 6 tímar - LLS Academy Tenerife 

  3. Skólaheimsókn - 6 tímar - Wingate School

  4. Frjálsdagur

  5. Námskeið - Heilsa og hreyfing barna

  6. Námskeið - Núvitund og yoga í kennslustofunni

  7. Frjálsdagur

  8. Heimferð.

Innifalið:

  • Flug til og frá Tenerife með innrituðum farangri

  • Sjö nætur með morgunmat á hóteli (+4 stjörnu)

  • Allar samgöngur á eyjunni (tengdar skipulagðri dagskrá)

  • 6 tíma Skólaheimsókn í LLS Academy Tenerife**

  • 6 tíma Skólaheimsókn í Wingate School (einkaskóli)**

  • 6 tíma Námskeið - Heilsa og hreyfing barna**

  • 6 tíma Námskeið - Núvitund og yoga í kennslustofunni**

  • ​Íslenskir fararstjórar flygja hópnum í alla dagskrá

  • Þjónustu og neyðarsími

Viðbættur:

  • Lokahóf - sameiginlegur kvöldverður og skemmtun.

  • Hópeflis ferð (fjölbreytt úrval af ferðum í boði)​​

  • Kynnisferð um eyjuna (8 tímar)​

  • Hálft fæði eða heilt fæði á hóteli.

Við vinnum námsferðapakkana okkar í samræmi við reglur starfsmenntunarstyrk kennara.  Upplýsingar.

Nokkur dæmi um Skólar sem hafa komið í styrktarhæfar námsferð með okkur:
Álfhólsskóli - Sjálandsskóli - Hólabrekkuskóli - Vatnsendaskóli - Kerrhólsskóli - Öldusselskóli - Háaleitisskóli

 

​Fáðu tilboð fyrir þinn skóla:

Takk fyrir þið munuð heyra frá okkur á næstu dögum.

Tilboð
bottom of page